Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
banner
   sun 15. mars 2026 15:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu atvikið: Dómarinn gleymdi að hann hafði gefið gult spjald
Gabriel Gudmundsson
Gabriel Gudmundsson
Mynd: EPA
Það kom upp furðulegt atvik í leik Crystal Palace og Leeds þegar dómari leiksins virtist ekki átta sig á því að Gabriel Gudmundsson, leikmaður Leeds, væri kominn með gult spjald.

Hann fékk gult spjald eftir 25 mínútna leik og fékk síðan sitt annað gula spjald seint í uppbótatíma fyrri hálfleiks fyrir brot á Ismaila Sarr.

Thomas Bramall, dómari leiksins, gaf honum sitt annað gula spjald en virtist ekki ætla að lyfta rauða spjaldinu. Sarr mótmælti og eftir spjall við aðstoðarmenn sína lyfti Bramall loks upp rauða spjaldinu.

Staðan er markalaus í hálfleik en Dominic Calvert-Lewin klikkaði á vítaspyrnu undir lok hálfleiksins.

Sjáðu atvikið hér


Athugasemdir
banner