Man Utd gæti gert tilboð í Hjulmand - Tottenham ætlar að fá Eze - Fulham sýnir Höjlund áhuga
   fös 15. ágúst 2025 11:12
Elvar Geir Magnússon
Fjölskylda Jota verður á Anfield í kvöld
Rute Cardoso og Diogo Jota gengu í hjónaband fyrr á árinu.
Rute Cardoso og Diogo Jota gengu í hjónaband fyrr á árinu.
Mynd: X
Liverpool og Bournemouth mætast í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld en það verður tilfinningaþrungið andrúmsloft fyrir leikinn.

Diogo Jota, sem lést í bílslysi ásamt bróður sínum í síðasta mánuði, verður minnst og fjölskylda hans mætir á leikinn.

Ekkja hans, Rute Cardoso, og börnin þeirra þrjú verða á leiknum.

„Mikilvægt er að við sem félag sýnum þeim ást og stuðning þegar þau takast á við þessa erfiða stöðu. Við munum alltaf vera til staðar fyrir þau," skrifaði Arne Slot, stjóri Liverpool, í leikskrá fyrir leikinn.

Leikmenn Liverpool munu spila með áletrunina 'Forever 20' á treyjum sínum til minningar um Jota og það verður svo áfram á treyjum þeirra út tímabilið.
Athugasemdir
banner
banner
banner