Tottenham hljóp níu kílómetrum meira en Liverpool þegar liðin gerðu jafntefli í viðureign sinni í gærdag. Dominik Szoboszlai kom Liverpool yfir með marki beint úr aukaspyrnu en Brasilíumaðurinn Richarlison jafnaði fyrir Tottenham undir lok leiks.
Tölfræði leiksins sýnir að leikmenn Tottenham hlupu samtals 118.3 kílómetra á meðan Liverpool hljóp 109.6 kílómetra. Lundúnaliðið hljóp því um 7.3 prósent meira en Liverpool.
Tölfræði leiksins sýnir að leikmenn Tottenham hlupu samtals 118.3 kílómetra á meðan Liverpool hljóp 109.6 kílómetra. Lundúnaliðið hljóp því um 7.3 prósent meira en Liverpool.
Igor Tudor sótti þarna sitt fyrsta stig sem stjóri Tottenham en liðið situr nú í sextánda sæti, einu stigi frá fallsæti.
Fyrir hlaupagetu sína fá lærisveinar Tudor hina virtu Duracell viðurkenningu vikunnar frá Fótbolta.net.
Athugasemdir


