Al Hilal undirbýr stórt tilboð í Fernandes - Bayern vill Mitoma - Delap og Doak til Everton?
   lau 24. maí 2025 16:45
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Mbappe skoraði tvö og klúðraði víti í kveðjuleik Modric
Kylian Mbappe leiðir baráttuna um gullskólinn
Kylian Mbappe leiðir baráttuna um gullskólinn
Mynd: EPA
Luka Modric spilaði sinn síðasta leik með Real Madrid á Bernabeu
Luka Modric spilaði sinn síðasta leik með Real Madrid á Bernabeu
Mynd: EPA
Real Madrid 2 - 0 Real Sociedad
1-0 Kylian Mbappe ('38 )
1-0 Kylian Mbappe ('38 , Misnotað víti)
2-0 Kylian Mbappe ('83 )

Spænska stórveldið Real Madrid lauk tímabilinu með því að vinna 2-0 sigur á Real Sociedad í La Liga í dag.

Luka Modric var að spila sinn síðasta leik fyrir Madrídinga og var auðvitað í byrjunarliðinu, en það var Kylian Mbappe sem fangar fyrirsagnir dagsins.

Hann kom sér í bílstjórasætið í baráttunni um gullskóinn með því að skora á 38. mínútu. Real Madrid fékk vítaspyrnu og var það Mbappe sem tók það, en Unai Marrero sá við honum. Sem betur fer fyrir Mbappe datt boltinn aftur fyrir hann og var hann í engum vandræðum með að nýta frákastið.

Mbappe tryggði sigurinn á 83. mínútu með 31. deildarmarki sínu á tímabilinu og þarf Mohamed Salah að skora að minnsta kosti fjögur mörk með Liverpool á morgun til þess að taka gullskóinn.

Frábært fyrsta tímabil hjá Mbappe, það er að segja ef horft er í einstaklingstölfræði, en ekkert spes ár hjá liðinu sem tókst ekki að sækja titil.

Modric var kvaddur. Einn sá allra besti í sögu Madrídinga og yfirgefur liðið 39 ára gamall. Hann fékk heiðursskiptingu og standandi lófaklapp á lokamínútunum þar sem fjölskyldan tók á móti honum á hliðarlínunni ásamt Toni Kroos, fyrrum samherja hans hjá Real Madrid.

Hann spilar ekki aftur á Santiago Bernabeu en Króatinn staðfesti sjálfur í viðtali eftir leik að hann verði með á HM félagsliða sem hefst í næsta mánuði og lýkur í júlí.

Real Madrid hafnaði í 2. sæti deildarinnar með 84 stig en það er nokkuð ljóst að Mbappe mun hreppa titilinn sem markakóngur en hann er sex mörk á undan Robert Lewandowski sem hefur aðeins einn leik til að ná Mbappe.


Athugasemdir