Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Mér fannst frábært að spila með honum
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
„Tel mig vera þessi leiðtogi sem fólkið þarf“
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
Júlíus Mar: Hausinn vildi fara út
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
„Enginn sem óskar sér þess að mæta Víkingi“
Gæðastjórinn ætlar að reikna út xF
Birkir Már: Hefði sagt takk en nei takk væri hann ekki þarna
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
   sun 24. desember 2023 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Patrik náði markmiðinu: Ekki sjálfgefið að fá traustið 21 árs gamall
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Tíminn hjá Viking hefur verið fínn, það mikilvægasta fyrir mig var að fá að spila og reyna hjálpa klúbbnum og liðinu. Það hefur gengið. Ég fer fljótlega að detta í 100 leiki fyrir klúbbinn og markmiðinu náð: að festa mig í sessi einhvers staðar sem markmaður númer eitt eftir að hafa aðeins verið á flakki á Englandi," sagði Patrik Sigurður Gunnarsson.

Patrik samdi fór fyrst á láni til norska félagsins Viking í sumarglugganum 2021 og var eftir það tímabil fenginn alfarið til Noregs. Hann hefur verið aðalmarmaður liðsins. Patrik er 23 ára gamall og fór frá uppeldisfélaginu Breiðabliki til Brentford árið 2018.

„Við byrjuðum þetta tímabil allt í lagi, erum í 5.-6. sæti og náum svo góðu skriði; vinnum tíu leiki í röð og bætum með því félagsmet yfir flesta sigra í röð. Þegar átta leikir eru eftir þá erum við á toppnum. Þá lentum við í meiðslum og leikbönnum og eigum lélegan kafla. Við missum sjálfstraust og erum í veseni í 4-5 leikjum. Við endum svo á því að vinna tvo af síðustu þremur leikjunum. Það var þvílík samkeppni um Evrópusæti alveg til loka. Maður er bara reynslunni ríkari eftir það. Í heild var þetta flott tímabil fyrir Víking sem félag."

„Þetta spilaðist þannig að ef við hefðum unnið í síðustu umferðinni þá hefðum við náð Evrópusæti. Við hefðum líka náð Evrópusæti ef Bodö/Glimt hefði klárað bikarinn, en Molde skoraði sigurmarkið í uppbótartíma."

„Þegar á heildina litið þá held ég að bæði stuðningsmenn og félagið sé nokkuð sátt með þetta tímabil. Viking vill festa sig í sessi við toppinn og vera samkeppnishæft yfir heilt tímabil. Það má ekki gleyma því að Viking var bara í B-deild fyrir einhverjum fimm árum. Að hafa náð 3. sæti og núna 4. sætið á síðustu þremur árum er flott fyrir félagið."


Verið einn af yngstu markmönnum deildarinnar
Patrik hefur fengið mikið traust hjá félaginu og er hann ánægður með það.

„Ég er mjög sáttur við það. Það er ekki sjálfgefið að fara 21 árs gamall, fá traustið og spila viku eftir viku. Það var það sem mig vantaði og er þakklátur þjálfurunum og félaginu fyrir það. Á þessum fyrstu tímabilum hef ég verið einn af yngstu markmönnum deildarinnar. Það er bara flott fyrir mig."

Búin að koma sér vel fyrir í Stavanger
Lífið í Stavanger er fínt. „Ég bý úti með kærustunni og við erum búin að koma okkur vel fyrir; höfum fjárfest í íbúð og hún er komin með vinnu tengda náminu sem hún kláraði hér á Íslandi."

„Ég er þokkalega sáttur við að hafa verið þarna og verið að spila. Í sjálfu sér er ekkert stress á mér. Ég leyfi umboðsmönnunum mínum að sjá um þau mál. Ef það kemur eitthvað þá er það bara umboðsmannsins og félagsins að koma með rétta næsta skref."


Áhugi var á Patrik frá belgísku félagi síðasta sumar en Viking hafnaði tilboðinu. Í viðtalinu er Patrik spurður út í sína fyrrum liðsfélaga David Raya og Birki Bjarnason og hann fær einnig spurningar um íslenska landsliðið. Viðtalið í heild má sjá í spilaranum efst.

   26.02.2022 12:30
Brentford með forkaupsrétt á Patrik - „Voru það ánægðir með mig"

   21.02.2022 23:55
Sagði mér hversu mikið félagið vildi fá mig

Slapp
Athugasemdir
banner
banner