Þór sigraði Magna þegar liðin mættust í Inkasso-deildinni í kvöld.
Mikil stemning var á leiknum í Grenivík og en 804 áhorfendur gerðu sér ferð á völlinn.
Þetta eru frábærar tölur þar sem aðeins 372 búa í Grýtubakkahreppi þar sem Grenivík er. Hér er vísað í tölu á vefsíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga en þar segir að íbúar Grýtubakkahrepps séu 372 frá og með 1. janúar.

Áhorfendur í kvöld fengu líka nóg fyrir peninginn, sérstaklega síðasta stundarfjórðunginn þar sem skoruð voru þrjú mörk og þar að auki fóru tvö rauð spjöld á loft.
Þór er erftir sigurinn í kvöld í þriðja sæti Inkasso-deildarinnar, Magni er á botni deildarinnar.
Gleymið HM. Ástríðan er á Eyjabiti Stadium. Magni - Þór. #inkasso #fotboltinet pic.twitter.com/CjKBpLjRoh
— Guðmundur Egill 🇮🇸 (@gudmegill) June 13, 2018
Skulum aðeins setja hlutina í samhengi. Á Grenivík búa um 200+ manns. Á Magni-Þór eru rúmlega 800 áhorfendur.
— Jón Stefán Jónsson (@Jonsi82) June 13, 2018
Væri eins og Fjölnir fengi 80 þús manns á völlinn.#inkasso #fotboltinet
Athugasemdir