Newcastle vill læra af síðasta sumri - Arsenal í baráttu við PSG um leikmann - Man Utd búið að krækja í ungan leikmann
   fös 02. maí 2025 20:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: De Bruyne batt enda á sigurgöngu Wolves
Mynd: EPA
Manchester City 1 - 0 Wolves
1-0 Kevin De Bruyne ('35 )

Kevin de Bruyne var hetjan þegar Man City batt enda á magnaða sigurgöngu Wolves í kvöld.

Wolves fékk gullið tækifæri til að komast yfir en sendingin fyrir frá Jean-Ricner Bellegarde á Marshall Munetsi of föst og hann komst ekki í boltann.

Eftir rúmlega hálftíma leik komst Man City yfir gegn gangi leiksins. Jeremy Doku lagði boltann út í teiginn á Kevin de Bruyne sem skoraði með góðu skoti.

Matheus Cunha var nálægt því að jafna metin eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik en skotið í stöngina.

Rayan Ait Nouri var heppinn að fá ekki rautt spjald þegar hann steig á Bernardo Silva en VAR ákvað að gera ekkert í því.

Fleira markvert gerðist ekki í seinni hálfleik. Dýrmætur sigur fyrir Man City í Meiistaradeildarbaráttunni en sex leikja sigurgöngu Wolves er lokið. Man City er í 3. sæti með 64 stig en Wolves í 13. sæti með 41 stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 34 25 7 2 80 32 +48 82
2 Arsenal 34 18 13 3 63 29 +34 67
3 Man City 35 19 7 9 67 43 +24 64
4 Newcastle 34 19 5 10 65 44 +21 62
5 Chelsea 34 17 9 8 59 40 +19 60
6 Nott. Forest 34 18 6 10 53 41 +12 60
7 Aston Villa 34 16 9 9 54 49 +5 57
8 Fulham 34 14 9 11 50 46 +4 51
9 Brighton 34 13 12 9 56 55 +1 51
10 Bournemouth 34 13 11 10 53 41 +12 50
11 Brentford 34 14 7 13 58 50 +8 49
12 Crystal Palace 34 11 12 11 43 47 -4 45
13 Wolves 35 12 5 18 51 62 -11 41
14 Man Utd 34 10 9 15 39 47 -8 39
15 Everton 34 8 14 12 34 41 -7 38
16 Tottenham 34 11 4 19 62 56 +6 37
17 West Ham 34 9 9 16 39 58 -19 36
18 Ipswich Town 34 4 9 21 33 74 -41 21
19 Leicester 34 4 6 24 27 76 -49 18
20 Southampton 34 2 5 27 25 80 -55 11
Athugasemdir
banner
banner