Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
   þri 03. febrúar 2026 22:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spænski bikarinn: Barcelona of stór biti fyrir Albacete
Mynd: EPA
Albacete 1 - 2 Barcelona
0-1 Lamine Yamal ('39 )
0-2 Ronald Araujo ('56 )
1-2 Javi Moreno ('87 )

Albacete, sem leikur í næst efstu deild á Spáni, kom á óvart í síðustu umferð spænska bikarsins þegar liðið vann Real Madrid.

Liðið fékk annað risaverkefni í kvöld þegar Barcelona kom í heimsókn í 8-liða úrslitum.

Barcelona var með yfirburði í fyrri hálfleik eins og búast mátti við en tókst ekki að ógna markinu fyrr en undir lok hálfleiksins. Þá fékk Yamal boltann út á kantinum og setti boltann snyrtilega í fjærhornið og kom liðinu yfir.

Barcelona bætti enn meira við sóknarleikinn í seinni hálfleik en það var miðvörðurinn Ronald Araujo sem skoraði annað mark liðsins. Javi Moreno náði að klóra í bakkann fyrir Albacete en það dugði ekki til og Barcelona er komið í undanúrslit.
Athugasemdir
banner
banner