Nágrannar í samkeppni um Anderson - Fernandes á óskalista Bayern og PSG - Liverpool ætlar að endurbyggja hópinn
   mán 06. nóvember 2023 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
ELN segist enn vera plana það að sleppa föður Díaz
ELN, skæruliðahópurinn sem er með föður fótboltamannsins Luis Díaz í haldi, vill að öryggisráðstafanir verði gerðar áður en Luis Díaz eldri verður sleppt.

Foreldrum leikmannsins var rænt fyrir rúmri viku síðan en móður hans var síðan sleppt.

Samtökin sendu frá sér yfirlýsingu fyrir helgi þar sem fram kom að áætlunin væri að sleppa Díaz eldri á næstu klukkutímum en ekkert varð úr því.

Jose Manuel Martinez Quiron, hershöfðingi ELN, segir að stjórnvöld í Kólumbíu séu að tefja ferlið. Hann biður þau um að hætta stórum leitaraðgerðum á svæðinu og tryggja það að enginn muni meiðast. Um leið og stjórnvöld tryggja að enginn muni slasast, þá verði honum sleppt.

Díaz skoraði fyrir Liverpool í jafntefli gegn Luton í gær en eftir leikinn biðlaði hann til ELN að sleppa föður sínum.


Slapp
banner
banner