Harvey Barnes, leikmaður Newcastle, er harðákveðinn í því að reyna vinna sér sæti í enska landsliðshópnum fyrir HM í sumar.
Barnes hefur spilað einn æfingaleik fyrir England en hann gæti spilað fyrir skoska landsliðið ef hann vildi þar sem amma hans og afi í móðurætt eru skosk.
Barnes hefur spilað einn æfingaleik fyrir England en hann gæti spilað fyrir skoska landsliðið ef hann vildi þar sem amma hans og afi í móðurætt eru skosk.
Steve Clarke, landsliðsþjálfari Skota, var spurður út í Barnes eftir Þjóðadeildadráttinn í gær.
„Það eru allir að spurja að þessu. Að þessu sinni get ég sagt með vissu að Harvey ætlar að einbeita sér að því að reyna að spila fyrir England. Hann ætlar ekki að spila fyrir Skotland. Það má koma því á framfæri," sagði Clarke.
Athugasemdir


