Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
banner
   fös 13. febrúar 2026 14:35
Kári Snorrason
Enska fótboltasambandið kærir Rodri fyrir ummæli sín
Mynd: EPA
Rodri hefur verið ákærður fyrir óviðeigandi hegðun af enska fótboltasambandinu vegna ummæla sem hann lét falla um dómara eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn Tottenham fyrr í mánuðinum.

Spænski miðjumaðurinn var vægast sagt ósáttur yfir að mark Dominic Solanke hafi fengið að standa eftir að Solanke virtist sparka í gegnum fótinn á varnarmanninum Marc Guehi.

Rodri er sakaður um að hafa sýnt ósæmilega hegðun með ummælum sem gefa í skyn hlutdrægni og draga í efa heilindi dómara.

Fyrrum gullboltahafinn gæti átt von á leikbanni vegna ummælanna en enska fótboltasambandið segir að Rodri hafi frest til 18. febrúar til að svara ákærunni.

„Í hreinskilni veit ég ekki hvernig mér á líða. Ég hef séð myndirnar, gat ekki séð þetta í leiknum. En þetta er augljóst brot, augljóst brot! Það er ástæða fyrir því að það er VAR. Svona atriði skipta máli.

Ég veit að við höfum unnið of mikið og fólk vill ekki að við vinnum, en dómarinn verður að vera hlutlaus. Þetta er ekki sanngjarnt því við leggjum svo hart að okkur,“
sagði Rodri meðal annars í viðtali eftir leik.



Athugasemdir
banner