Pisa 1 - 2 Milan
0-1 Ruben Loftus-Cheek ('39 )
0-1 Niclas Fullkrug ('56 , Misnotað víti)
1-1 Felipe Loyola ('71 )
1-2 Luka Modric ('85 )
Rautt spjald: Adrien Rabiot, Milan ('91)
0-1 Ruben Loftus-Cheek ('39 )
0-1 Niclas Fullkrug ('56 , Misnotað víti)
1-1 Felipe Loyola ('71 )
1-2 Luka Modric ('85 )
Rautt spjald: Adrien Rabiot, Milan ('91)
AC Milan er í öðru sæti ítölsku deildarinnar eftir nauman sigur á útivelli gegn nýliðum Pisa.
Fyrrum Chelsea mennirnir Ruben Loftus-Cheek og Christopher Nkunku byrjuðu saman í fremstu víglínu og skoraði Loftus-Cheek fyrsta mark leiksins með skalla á 39. mínútu.
Staðan var 0-1 eftir bragðdaufan fyrri hálfleik þar sem skallamark Loftus-Cheek gerði gæfumuninn.
Nkunku var skipt af velli í upphafi síðari hálfleiks fyrir annan fyrrum úrvalsdeildarleikmann, Niclas Füllkrug, og var dæmd vítaspyrna skömmu síðar eftir að brotið var á miðverðinum Strahinja Pavlovic innan vítateigs.
Nkunku er vítaskytta Milan en hann var farinn af velli, svo Füllkrug steig á punktinn. Þjóðverjinn tók fína vítaspyrnu en Nicolas Andrade varði meistaralega frá honum.
Korteri síðar tókst Felipe Loyola að jafna metin eftir langa sendingu upp völlinn. Klaufagangur í vörn Milan gerði Loyola kleift að skora og var mikil spenna á lokakaflanum.
Milan var ekki að skapa sér mikið en reynsluboltinn Luka Modric náði að prjóna sig í gegnum vörnina til að endurheimta forystuna. Hinn fertugi Modric lék allan leikinn og hafði ennþá orkuna í að spretta innfyrir vörnina og skora á 85. mínútu.
Hann bjó markið til með aðstoð frá Samuele Ricci, þar sem hann gerði vel að koma boltanum á Ricci sem var í góðri stöðu innan vítateigs. Ricci hélt boltanum nægilega lengi til að gera Modric kleift að fá hann aftur og skora af stuttu færi.
Þetta reyndist sigurmarkið svo lokatölur urðu 1-2 þökk sé hetjunni þaulreyndu Luka Modric. Adrien Rabiot fékk gult spjald í uppbótartíma og annað gult beint í kjölfarið fyrir kjaftbrúk, svo hann missir af næsta leik.
Milan er í öðru sæti ítölsku deildarinnar, fimm stigum á eftir toppliði og nágrönnum sínum í Inter.
Athugasemdir



