Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
banner
   fös 13. febrúar 2026 08:40
Elvar Geir Magnússon
Man Utd með mörg járn í eldinum - Tottenham vill Pulisic
Powerade
Aleksandar Stankovic er sonur Dejan Stankovic.
Aleksandar Stankovic er sonur Dejan Stankovic.
Mynd: EPA
Tottenham vill Pulisic.
Tottenham vill Pulisic.
Mynd: EPA
Góðan og gleðilegan föstudag, hér er komið að slúðurpakkanum. Manchester United er feikilega áberandi í slúðrinu um þessar mundir en BBC tók saman það helsta sem verið er að fjalla um.

Paris St-Germain er tilbúið að berjast við ensku félögin Manchester United og Tottenham með því að gera 100 milljóna punda tilboð í kamerúnska miðjumanninn Carlos Baleba (22) hjá Brighton. (Fichajes)

Manchester United reiknar með því að varnarmaðurinn Harry Maguire (32) framlengi samning sinn sem rennur út eftir tímabilið. (TeamTalk)

Manchester United, Arsenal, Chelsea og Tottenham eru meðal enskra félaga sem fylgjast með serbneska miðjumanninum Aleksandar Stankovic (20) hjá Club Brugge. (TeamTalk)

Njósnarar Manchester United verða í stúkunni á laugardag til að fylgjast með franska varnarmanninum Pierre Kalulu (25) hjá Juventus þegar lið hans mætir Inter á laugardaginn. (Tuttosport)

Manchester United fylgist með gambíska varnarmanninum Abubacarr Sedi Kinteh (19) hjá Tromsö og spænska miðverðinum Hugo Fernandez (18) hjá Valencia. (Mail)

Tottenham hefur áhuga á bandaríska landsliðsmanninum Christian Pulisic (27) hjá AC Milan en þessi fyrrum sóknarleikmaður Chelsea er opinn fyrir því að snúa aftur til Englands í sumar. (TeamTalk)

Tottenham reynir að fá inn bráðabirgðastjóra áður en félagið reynir að endurráða Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfara Bandaríkjanna, eftir HM í sumar. (Sun)

Það verður forgangsmál Newcastle United í sumar að fá inn sóknarmann. Félagið er þegar að reyna að selja hinn þýska Nick Woltemade (23) sem kom á metfé síðasta sumar. (Football Insider)

Pólski sóknarmaðurinn Robert Lewandowski (37) hjá Barcelona mun bíða með að taka ákvörðun um framtíð sína þar til eftir forsetakosningar félagsins í mars. AC Milan, Atletico Madrid, Chicago Fire, Fenerbahce og félög í Sádi-Arabíu vilja fá hann. (Mundo Deportivo)

Argentínski framherjinn Santiago Castro (21) hjá Bologna hefur skrifað undir nýjan fjögurra og hálfs árs samning við ítalska félagið. Chelsea, Everton og Aston Villa eru meðal félaga sem hafa horft til hans. (Football Italia)
Athugasemdir
banner
banner