Það voru nokkrir Íslendingar sem komu við sögu í leikjum dagsins víða um Evrópu þar sem Valgeir Lunddal Friðriksson fékk að spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik síðan í september.
Valgeir Lunddal hefur verið að glíma við meiðsli á fæti stærsta hluta tímabils en fékk að koma við sögu inn af bekknum í síðustu tveimur leikjum með Fortuna Düsseldorf. Í dag var hann í byrjunarliðinu og lék fyrstu klukkustundina í markalausu jafntefli við Preussen Münster.
Düsseldorf er í fallbaráttu í næstefstu deild í þýska boltanum með 25 stig eftir 22 umferðir. Valgeir vonast til að geta hjálpað liðinu að fjarlægjast fallbaráttuna.
Valgeir er 24 ára gamall og á tvö og hálft ár eftir af samningi við þýska félagið.
Í efstu deild í þýska kvennaboltanum lék Sandra María Jessen allan leikinn í naumu tapi hjá Köln gegn Bayer Leverkusen.
Sandra leiddi sóknarlínu Köln en tókst ekki að skora í 2-1 tapi. Hún skoraði níu mörk í fyrstu þrettán deildarleikjunum í Þýskalandi en hefur núna mistekist að skora fjóra leiki í röð.
Köln er með 25 stig eftir 18 umferðir, sex stigum á eftir Leverkusen sem situr í meistaradeildarsæti eftir þennan sigur.
Í efstu deild í Tyrklandi var Logi Tómasson ekki í hóp er Samsunspor tapaði útileik gegn Antalyaspor. Samsunspor er í sjöunda sæti með 30 stig eftir 22 umferðir, en þetta var annar tapleikur liðsins í röð. Liðið er tíu stigum frá evrópusæti.
Jóhann Berg Guðmundsson var heldur ekki með í jafntefli hjá Al-Dhafra í efstu deild í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Norsku stórveldin Viking og Brann unnu þá æfingaleiki sína örugglega gegn AIK og Odd á meðan Sarpsborg lagði Ham-Kam að velli og Vålerenga tapaði fyrir Lyn í kvennaboltanum.
Dusseldorf 0 - 0 Preussen Munster
Leverkusen 2 - 1 Köln
Antalyaspor 3 - 1 Samsunspor
Al-Bataeh 1 - 1 Al-Dhafra
Viking 4 - 1 AIK
Brann 6 - 1 Odd
Sarpsborg 3 - 2 Ham-Kam
Valerenga 0 - 1 Lyn
Athugasemdir




