Everton vill fá Grealish á lægra verði - Man Utd á eftir Wharton - West Ham hafnaði tilboði Chelsea
Ingimar Arnar skoraði sigurmarkið: Ég man ekki einu sinni eftir þessu
Jóhann Birnir: Svekkelsi
Sigfús Fannar: Þetta mark var fyrir hana
Siggi Höskulds: Fannst við eiga skilið að vinna þessa deild
Addi Grétars: Ekki mikil fótboltaleg gæði
Aron Ingi: Það var bara eitt markmið og það var að fara beint upp
Gústi Gylfa: Úr því sem komið var var markmiðið að halda sér uppi
Aron Birkir: Ég veit ég gat ekkert í fyrra
Alli Jói: Ekki bara leikjahæsti heldur besti leikmaður í sögu Völsungs
Gunnar Már: Við förum beint upp
HK náði markmiðinu - „Voru ótrúlega sterkir í hausnum"
Hafa áhuga á að halda áfram með Grindavík - „Spennandi hópur og við Marko vinnum vel saman"
Gunnar Heiðar: Lengri leið og hún verður bara skemmtilegri fyrir vikið
Bjarki stoltur eftir síðasta leikinn sinn - „Liðið hefur aldrei verið á betri stað"
Fannar Daði: Það var ekkert planið að spila á þessu tímabili
Jóhannes Karl: Aldrei spurning í seinni hálfleik hvernig þessi leikur fari
Óskar Smári: Í dag fannst mér við gefa ódýr mörk
Jói talar um leiksýningu hjá dómurunum - „Greinilega mjög hræddir við það umtal"
Óli Kristjáns: Get ekki tekið undir það að dómgæslan hafi verið slök
Ómar Björn: Greinilega alltaf gíraðir gegn Blikunum
banner
   lau 13. september 2025 18:14
Hafþór Örn Laursen
Gústi Gylfa: Úr því sem komið var var markmiðið að halda sér uppi
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leiknir hélt sér uppi í Lengjudeildinni eftir æsispennandi 1-2 sigur gegn Fjölni.

„Tilfinningin er frábær. Frábært að fagna með Leiknisliðinu að halda sér uppi og úr því sem komið var var það orðið markmiðið. Leiðinlegt að þurfa fara með þetta í seinasta leik og seinustu mínúturnar. Maður var farinn að gruna að þetta myndi enda svona að þetta færi alveg í lokin.''

„Ég vil samt sem áður hrósa þeim í Breiðholtinu fyrir að hafa ráðið mig til starfa. Við misstum 7 lykilleikmenn sem eru allir að spila í Bestu deild í dag og það var erfitt að rétta úr kútnum. Óli Hrannar stóð vaktina fyrstu 5 leiki og ég tók síðustu 17. Sama má segja um Fjölni sem misstu líka mikið af leikmönnum fyrir sumarið og leiðinlegt að þurfa að sjá eftir þeim niður í 2. deild. Það er kannski það sem situr eftir.''

„Mér fannst við koma inn af krafti. Liðið hefur batnað með tímanum og við vorum nokkuð solid. Komum hátt á völlinn og það var jafnræði milli liða. Þeir voru með mikið af skyndisóknum en að mínu viti var þetta ágætis frammistaða og gott að ljúka þessu með sigri. Ef við förum út í sigurmarkið þá fannst mér vera smá bakhrinding hjá okkar manni en hann tekur boltann og skorar glæsilegt mark.''

Við vorum soldið stressaðir hvernig staðan var í öðrum leikjum og hvað við þurftum að gera. Við vissum á bekknum að úrslitin voru að falla með okkur og sögðum mönnum að vera í rólegheitum og halda shape-i og halda í stigið. Svo kemur þetta moment þar sem við skorum sigurmarkið og að sjálfsögu fögnum við því, lokahófið í kvöld og ekkert hægt að gera en að fagna.''

Gústi var spurður út í næsta tímabil.

„Markmiðið er að gera betur heldur en á þessu ári. Þetta var 100 daga samningur hjá mér sem er runninn út núna eftir þennan leik þannig við sjáum hvað gerist.''

Viðtalið má sjá heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
Lestu um leikinn
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Þór 22 14 3 5 51 - 31 +20 45
2.    Njarðvík 22 12 7 3 50 - 25 +25 43
3.    Þróttur R. 22 12 5 5 43 - 37 +6 41
4.    HK 22 12 4 6 46 - 29 +17 40
5.    Keflavík 22 11 4 7 53 - 39 +14 37
6.    ÍR 22 10 7 5 38 - 27 +11 37
7.    Völsungur 22 7 4 11 36 - 52 -16 25
8.    Fylkir 22 6 5 11 34 - 32 +2 23
9.    Leiknir R. 22 6 5 11 24 - 40 -16 23
10.    Grindavík 22 6 3 13 38 - 61 -23 21
11.    Selfoss 22 6 1 15 25 - 44 -19 19
12.    Fjölnir 22 3 6 13 32 - 53 -21 15
Athugasemdir
banner