Ítalska stórveldið Inter ætlar að nýta sér endurkaupsrétt á Aleksandar Stankovic sem er að gera frábæra hluti með Club Brugge í Belgíu.
Stankovic hefur vakið áhuga enskra úrvalsdeildarfélaga en Inter getur keypt leikmanninn aftur til sín fyrir 23 milljónir evra.
Stankovic er 20 ára gamall og leikur sem varnarsinnaður miðjumaður að upplagi, en getur einnig spilað sem miðvörður eða miðjumaður.
„Draumurinn minn er að snúa aftur til Inter. Ég er stuðningsmaður Inter og elska félagið. Ég vona að ég muni snúa aftur þangað einn daginn," sagði Stankovic á dögunum.
Hann er uppalinn hjá Inter enda er hann sonur goðsagnarinnar Dejan Stankovic, sem lék yfir 300 leiki fyrir Inter og vann allar mögulegar keppnir með félaginu - meðal annars Meistaradeild Evrópu undir stjórn José Mourinho.
Club Brugge borgaði 10 milljónir evra til að kaupa Stankovic í fyrrasumar og er varnarmaðurinn búinn að standa sig feykilega vel hjá sínu nýja félagi.
Hann er kominn með 7 mörk og 4 stoðsendingar í 37 leikjum á yfirstandandi tímabili og er þar að auki búinn að spila fjóra A-landsleiki fyrir Serbíu eftir að hafa verið mikilvægur hlekkur upp unglingalandsliðin.
Athugasemdir




