Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
banner
   lau 14. febrúar 2026 16:20
Ívan Guðjón Baldursson
Aron Einar í 8-liða úrslit - Sveinn Aron kom inn
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Cavese
Það var nokkuð af Íslendingum sem komu við sögu í leikjum dagsins í Evrópu, þar sem Aron Einar Gunnarsson lék fyrstu 87 mínúturnar í sigri Al-Gharafa.

Al-Gharafa lagði Al-Kharitiyath að velli í bikarnum þar sem Joselu, fyrrum leikmaður Real Madrid, skoraði annað markið í 2-0 sigri. Aron Einar og félagar munu spila næst við Umm Salal eða Al-Ahli Doha í 8-liða úrslitum.

Sveinn Aron spilaði þá síðasta hálftímann í jafntefli Cavese gegn Salernitana í þriðju efstu deild á Ítalíu. Hann kom inn í stöðunni 0-1 og urðu lokatölur 1-1.

Cavese er aðeins tveimur stigum frá fallsvæðinu og átta stigum frá umspilssæti. Salernitana er hins vegar í toppbaráttunni.

Í þriðju efstu deild í Þýskalandi varði Lúkas Petersson mark varaliðs Hoffenheim sem tapaði gegn toppliði Verl. Hoffenheim er með 32 stig eftir 24 umferðir.

Í Króatíu voru hvorki Danijel Dejan Djuric né Logi Hrafn Róbertsson í hóp í stóru tapi hjá Istra gegn toppliði Dinamo Zagreb. Istra er í fjórða sæti með 30 stig eftir 22 umferðir.

Að lokum voru ýmsir æfingaleikir sem fóru fram þar sem ekki er mikið af upplýsingum um byrjunarlið. Júlíus Magnússon var í byrjunarliði Elfsborg sem tapaði fyrir GAIS, en þar byrjaði Róbert Orri Þorkelsson á bekknum.

Mikael Neville Anderson byrjaði inná í sigri Djurgården gegn Vålerenga og AB frá Kaupmannahöfn lagði Trelleborg að velli.

Al-Gharafa 2 - 0 Al-Kharitiyath

Cavese 1 - 1 Salernitana

Verl 3 - 1 Hoffenheim II

Dinamo Zagreb 4 - 0 Istra 1961

GAIS 2 - 0 Elfsborg

Djurgarden 2 - 1 Valerenga

Trelleborg 0 - 1 AB

Ariana 1 - 2 Hassleholms

Brommapojkarna 1 - 0 Sandviken

Kalmar 1 - 3 Norrköping

Athugasemdir
banner
banner