Það fóru fimm leikir fram í Championship deildinni í dag þar sem Andri Lucas Guðjohnsen byrjaði í flottum sigri Blackburn Rovers.
Blackburn heimsótti QPR og stóð uppi sem sigurvegari þökk sé tvennu frá danska framherjanum Mathias Jörgensen. Andri lék í fremstu víglínu og var skipt af velli á 74. mínútu.
Þetta er mikilvægur sigur fyrir Blackburn sem er núna þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið, með 35 stig eftir 32 umferðir í mjög þéttum pakka. QPR er með 44 stig.
Rhian Brewster og Patrick Agyemang skoruðu mörkin í sigri Derby County sem klifrar uppfyrir Preston North End í umspilsbaráttunni. Derby lagði Swansea að velli á meðan Preston gerði jafntefli við Watford.
Millwall er í þriðja sæti eftir sigur á botnliði Sheffield Wednesday og er Sheffield United komið upp í 42 stig eftir sigurmark í uppbótartíma í Portsmouth.
QPR 1 - 3 Blackburn
0-1 Mathias Jorgensen ('21 )
1-1 Koki Saito ('35 )
1-2 Mathias Jorgensen ('40 )
1-3 Ryoya Morishita ('50 )
Derby County 2 - 0 Swansea
1-0 Rhian Brewster ('47 )
2-0 Patrick Agyemang ('67 )
Preston NE 2 - 2 Watford
1-0 Lewis Dobbin ('19 )
1-1 Othmane Maamma ('55 )
1-2 Luca Kjerrumgaard ('57 )
2-2 Thierry Small ('70 )
Sheffield Wed 1 - 2 Millwall
1-0 Jamal Lowe ('60 )
1-1 Cole Mcghee ('72 , sjálfsmark)
1-2 Macaulay Langstaff ('74 )
Portsmouth 0 - 1 Sheffield Utd
0-1 Andre Brooks ('91)
Athugasemdir




