Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
   lau 14. febrúar 2026 21:43
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Fimm mörk og rautt spjald í dramatískum risaslag
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Inter 3 - 2 Juventus
1-0 Andrea Cambiaso ('17 , sjálfsmark)
1-1 Andrea Cambiaso ('26 )
2-1 Pio Esposito ('76 )
2-2 Manuel Locatelli ('83 )
3-2 Piotr Zielinski ('90)
Rautt spjald: Pierre Kalulu, Juventus ('42)

Inter og Juventus áttust við í Ítalíuslagnum svokallaða í kvöld og náðu heimamenn forystunni þegar Andrea Cambiaso skoraði einstaklega óheppilegt sjálfsmark. Það er þó hægt að sakast meira við Michele Di Gregorio markvörð sem átti að verja boltann.

Cambiaso bætti þó upp fyrir sjálfsmarkið níu mínútum síðar þegar hann smeygði sér framfyrir Luis Henrique, sem sofnaði á verðinum eftir fyrirgjöf, og skoraði af stuttu færi.

Það ríkti jafnræði með liðunum í skemmtilegum fyrri hálfleik en gestirnir misstu Pierre Kalulu af velli með seinna gula spjaldið sitt á 42. mínútu. Kalulu var brjálaður þegar hann fékk gult spjald eftir að varnarmaður Inter dýfði sér, en VAR-herbergið skarst ekki í leikinn þar sem Kalulu snerti andstæðinginn með útréttan handlegg.

Í síðari hálfleik var Inter sterkari aðilinn en átti í erfiðleikum með að taka forystuna. Francesco Pio Esposito kom inn af bekknum og skoraði tíu mínútum síðar með frábærum skalla eftir fyrirgjöf frá Federico Dimarco.

Manuel Locatelli jafnaði fyrir tíu leikmenn Juve með skoti af vítateigslínunni eftir laglegt spil í kringum furðu hlédræga varnarmenn Inter.

Heimamenn juku sóknarþungan á lokamínútunum og skilaði það sér með sigurmarki. Piotr Zielinski skoraði með föstu skoti utan teigs og aftur var hægt að setja spurningarmerki við Di Gregorio á milli stanga Juve.

Lokatölur urðu 3-2 fyrir Inter sem trónir áfram á toppi Serie A deildarinnar, með 61 stig eftir 25 umferðir.

Juventus er í fimmta sæti með 46 stig.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner