Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
   lau 14. febrúar 2026 19:16
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Óvænt úrslit í Como - Atalanta vann á Ólympíuleikvanginum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það voru afar óvænt úrslit sem litu dagsins ljós við Como-vatn í dag þegar lærlingar Cesc Fábregas töpuðu fyrir fallbaráttuliði Fiorentina.

Albert Guðmundsson var ekki í hóp vegna meiðsla en samherjunum vegnaði vel án hans. Sterkur varnarleikur og góð færanýting skópu sigurinn í nokkuð jöfnum og lokuðum slag þar sem Nico Paz og félögum tókst ekki að skapa mörg færi.

Nicoló Fagioli skoraði fyrsta mark leiksins eftir misheppnaðan varnarleik hjá Marc Oliver Kempf sem tókst ekki að hreinsa boltann úr vítateignum.

Staðan var 0-1 í leikhlé og tvöfaldaði Moise Kean forystuna með öruggu marki úr vítaspyrnu á 54. mínútu, eftir einstaklega klaufalegt brot hjá Máximo Perrone innan vítateigs.

Heimamenn í liði Como vildu fá dæmda vítaspyrnu í tvígang eftir þetta en fengu ekki. Þeim leið eins og dómarinn væri að dæma gegn þeim og sauð allt upp úr á 70. mínútu sem endaði með því að Paolo Vanoli þjálfari Fiorentina var rekinn upp í stúku.

Sjö mínútum síðar minnkaði Como muninn þegar Fabiano Parisi skoraði sjálfsmark eftir misheppnaðan skalla hjá Álvaro Morata. Morata var orðinn augljóslega pirraður og fékk að líta tvö gul spjöld með stuttu millibili á lokamínútunum.

Tíu leikmenn Como fundu ekki jöfnunarmark svo lokatölurnar reyndust 1-2 fyrir Fiorentina, sem er komið með 21 stig eftir 25 umferðir. Þetta er mjög svekkjandi tap fyrir Como sem dettur úr síðasta evrópusætinu og niður í sjöunda sæti deildarinnar.

Atalanta er komið upp í sjötta sætið eftir frábæran sigur gegn Lazio á Ólympíuleikvanginum í Róm.

Það var lítið að frétta í jöfnum slag þar sem gestirnir frá Bergamó voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og náðu forystunni á 41. mínútu þegar Ederson skoraði af vítapunktinum.

Lazio var sterkara liðið í seinni hálfleik en tókst ekki að skora þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Leikmenn liðsins klúðruðu ótrúlegustu færum og fengu það svo í bakið þegar Nicola Zalewski skoraði eftir undirbúning frá Lorenzo Bernasconi.

Lokatölur urðu 0-2 og er Atalanta með 42 stig eftir 25 umferðir, fjórum stigum frá meistaradeildarsæti. Lazio er níu stigum á eftir Atalanta.

Como 1 - 2 Fiorentina
0-1 Nicolo Fagioli ('26 )
0-2 Moise Kean ('54 , víti)
1-2 Fabiano Parisi ('77 , sjálfsmark)
Rautt spjald: Alvaro Morata, Como ('89)

Lazio 0 - 2 Atalanta
0-1 Ederson ('41 , víti)
0-2 Nicola Zalewski ('60 )


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner