Curtis Jones, miðjumaður Liverpool, var orðaður við Inter undir lok félagaskiptagluggans í janúar en Arne Slot er ánægður að enski miðjumaðurinn sé áfram hjá félaginu.
Jones á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum hjá Liverpool en Slot vonast til að hann muni skrifa undir nýjan samning.
„Það er mjög eðlilegt að stór félög hafi áhuga á mjög góðum leikmönnum, eins og við sem erum að reyna framlengja samninginn hans," sagði Slot.
„Ef samningurinn er að renna út er eðlilegt að önnur stór félög hugsi: 'Kannski er hægt að næla í hann'."
Athugasemdir





