Síðustu leikjum dagsins hjá Íslendingunum okkar sem leika í Evrópu er lokið.
Viktor Bjarki Daðason byrjaði við hlið Mohamed Elyounoussi í fremstu víglínu hjá FC Kaupmannahöfn sem tók á móti Nordsjælland í efstu deild í Danmörku. Rúnar Alex Rúnarsson sat á bekknum.
FCK leiddi eftir fyrri hálfleikinn og var Viktori Bjarka skipt af velli á 61. mínútu, en níu mínútum síðar fékk samherji hans að líta seinna gula spjaldið sitt.
Tíu heimamenn réðu ekki við Nordsjælland og enduðu á að missa forystuna niður í tap, svo lokatölur urðu 1-2. Þetta er fjórði tapleikurinn í röð hjá FCK í deildinni og er liðið í sjötta sæti með 28 stig eftir 20 umferðir, tveimur stigum á eftir Nordsjælland sem er á góðri siglingu með þrjá sigra í röð.
Hörður Björgvin Magnússon átti þá góðan leik þegar Levadiakos hélt hreinu gegn stórveldi Olympiakos í toppbaráttu gríska boltans.
Levadiakos náði að knýja fram markalaust jafntefli og eru Hörður og félagar í fjórða sæti með 39 stig eftir 21 umferð, átta stigum á eftir Olympiakos sem er í titilbaráttu.
Á sama tíma var Hjörtur Hermannsson í byrjunarliði Volos sem gerði jafntefli við Aris. Volos og Aris eru um miðja deild í harðri baráttu um sæti í Sambandsdeild Evrópu fyrir næstu leiktíð.
Í efstu deild í Hollandi sat Brynjólfur Andersen Willumsson allan tímann á bekknum í tapi hjá Groningen gegn Utrecht. Þetta var fjórði tapleikurinn í röð hjá Groningen sem er búið að dragast afturúr í baráttunni um evrópusæti og gæti misst það til Utrecht.
Sigurður Bjartur Hallsson lék allan leikinn í fremstu víglínu hjá AD Merida í þriðju efstu deild á Spáni en tókst ekki að skora í 3-1 tapi.
Merida tapaði gegn fallbaráttuliði Ourense og er þetta skellur fyrir Sigurð og félaga sem eru að reyna að komast upp í næstefstu deild.
Í B-deildinni á Ítalíu rúllaði Venezia yfir Cesena í toppbaráttunni en Bjarki Steinn Bjarkason var ekki í hóp.
Feneyingar eru með fjögurra stiga forystu á toppi Serie B og stefna upp um deild. Frosinone er í öðru sæti með leik til góða og fylgja Palermo og Monza einnig fast á eftir.
Að lokum var Bergrós Ásgeirsdóttir í byrjunarliði Aarau sem steinlá gegn Servette í svissnesku deildinni. Aarau er á botni deildarinnar með 3 stig eftir 13 umferðir.
Kaupmannahöfn 1 - 2 Nordsjælland
Levadiakos 0 - 0 Olympiakos
Volos 1 - 1 Aris
Groningen 1 - 2 Utrecht
Ourense 3 - 1 Merida
Cesena 0 - 4 Venezia
Göteborg 4 - 2 Stabæk
Kortrijk 1 - 0 Beerschot
Aarau 0 - 3 Servette
Vittsjö 1 - 1 Rosengard
Athugasemdir




