Birmingham og Leeds eigast við fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar klukkan 12:00 á St. Andrews' leikvanginum í Birmingham í dag.
August Priske Flyger, sem kom til Birmingham frá Djurgården í síðasta mánuði, byrjar sinn fyrsta leik og sama á við um Jonathan Panzo sem kom frá Rio Ave.
Ryan Allsop, sem lék með Hetti sumarið 2012, er í marki Birmingham í leiknum, en þeir Carlos Vicente, Demerai Gray og Tommy Doyle koma einnig inn í liðið.
Birmingham: Allsop; Osayi-Samuel, Klarer, Panzo, Wagner; Doyle, Solís, Carlos Vicente, Stansfield, Gray; Priske
Daniel Farke gerir sex breytingar á liði Leeds frá 2-2 jafnteflinu gegn Chelsea. Lucas Perri kemur í markið og þá kom þeir Wilfried Gnonto, Sean Longstaff, Noah Okafor, Facundo Buonanotte og Ao Tanaka allir inn í byrjunarliðið.
Leeds: Lucas Perri; Bornauw, Bijol, Gudmundsson; Gnonto, Tanaka, Longstaff, Buonanotte, Justin; Nmecha, Okafor
???????????????? ???????????????? ????
— Birmingham City FC (@BCFC) February 15, 2026
Six changes from West Brom.@J_Panzoo makes his debut. August's first start. pic.twitter.com/jixhSRs1Kn
???? Your #LUFC XI... pic.twitter.com/6J6xBEMrMd
— Leeds United (@LUFC) February 15, 2026
Athugasemdir


