Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
banner
   sun 15. febrúar 2026 15:58
Brynjar Ingi Erluson
Enski bikarinn: Vítaspyrnumark Diarra dugði Sunderland - Reed hetja Fulham
Harrison Reed komst inn í sendingu og skoraði sigurmarkið
Harrison Reed komst inn í sendingu og skoraði sigurmarkið
Mynd: EPA
Habib Diarra skoraði sigurmark Sunderland úr vítaspyrnu
Habib Diarra skoraði sigurmark Sunderland úr vítaspyrnu
Mynd: Sunderland
Úrvalsdeildarliðin Fulham og Sunderland eru komin áfram í 5. umferð enska bikarsins.

Sunderland vann 1-0 sigur á B-deildarliði Oxford United á Kassam-leikvanginum í Oxford.

Senegalinn Habib Diarra skoraði sigurmark Sunderland með marki úr vítaspyrnu á 32. mínútu eftir að Christ Makosso braut af sér inn í teignum.

Matt Ingram, markvörður Oxford, var að eiga góðan leik og átti nokkrar góðar vörslur til að halda sínum mönnum inn í leiknum, en það vantaði aðeins upp á í sóknarleiknum.

Ekkert svakalega sannfærandi frammistaða frá Sunderland en sigrarnir þurfa ekki alltaf að vera fallegir. Þeir gerðu nóg til að komast áfram í næstu umferð þar sem andstæðingurinn verður eflaust sterkari.

Fulham kom til baka gegn Stoke og vann 2-1 sigur á Bet365-leikvanginum í Stoke on Trent.

Suður-Kóreumaðurinn Jun-Ho Bae kom Stoke í óvænta forystu á 19. mínútu en á 55. mínútu jafnaði Brasilíumaðurinn Kevin eftir skemmtilega rispu.

Hann lék sér með boltann vinstra megin, lagði hann inn á teiginn áður en hann fékk hann aftur og stýrði boltanum snyrtilega í hægra hornið.

Harrison Reed, sem skoraði flottasta mark ensku úrvalsdeildarinnar í jafntefli gegn Liverpool á dögunum, var síðan hetja Fulham eftir hræðilegan varnarleik hjá Stoke.

Markvörðurinn ætlaði að finna miðjumann en Reed komst inn í sendinguna og setti boltann örugglega framhjá Tommy Simkin í markinu.

Fulham komið áfram og öll úrvalsdeildarliðin búin að vinna leiki sína í dag. Síðasti leikur dagsins er síðan leikur Arsenal og Wigan sem mætast á Emirates-leikvanginum klukkan 16:30.

Oxford United 0 - 1 Sunderland
0-1 Habib Diarra ('32 , víti)

Stoke City 1 - 2 Fulham
1-0 Bae Joon-Ho ('19 )
1-1 Kevin ('55 )
1-2 Harrison Reed ('84 )
Athugasemdir
banner