Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 15. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópa í dag - Stórleikur í Napólí
Vinnur Lyon þrettánda leikinn í röð?
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það er nóg um að vera í sterkustu deildum Evrópu í dag og í kvöld þar sem fimmtán leikir eru á dagskrá.

Veislan hefst á Ítalíu þegar Udinese spilar við nýliða Sassuolo í hádegisleiknum, áður en Mikael Egill Ellertsson og félagar í liði Genoa heimsækja nýliða Cremonese í mikilvægum fallbaráttuslag.

Bologna heimsækir svo Torino í síðdeginu fyrir stórleik kvöldsins, þegar Ítalíumeistarar Napoli spila við Roma. Þrjú stig skilja Napoli og Roma að í þriðja og fjórða sætinu í Serie A og er ljóst að lærlingar Antonio Conte þurfa á sigri að halda til að eiga einhverja von um að ná toppliði Inter sem virðist óstöðvandi um þessar mundir.

Þá eru tveir leikir á dagskrá í þýska boltanum þar sem Augsburg og Heidenheim mætast í fallbaráttuslag áður en RB Leipzig fær tækifæri til að stökkva upp í þriðja sæti með sigri á fallbaráttuliði Wolfsburg.

Á Spáni hefur Athletic Bilbao ennþá tækifæri til að blanda sér í evrópubaráttuna þrátt fyrir hörmulegt gengi á fyrri hluta tímabils. Athletic þarf sigur gegn botnliði Real Oviedo í dag.

Atlético Madrid heimsækir svo fallbaráttulið Rayo Vallecano. Lærlingar Diego Simeone sigla þokkalega lygnan sjó ásamt Villarreal í þriðja til fjórða sæti deildarinnar.

Valencia heimsækir svo Levante í fallbaráttunni áður en Mallorca spilar við Real Betis.

Að lokum eru fjórir leikir í franska boltanum. Lyon og Nice eigast við í kvöldleiknum og þar fær Lyon tækifæri til að vinna sinn þrettánda leik í röð í öllum keppnum.

Serie A
11:30 Udinese - Sassuolo
14:00 Cremonese - Genoa
14:00 Parma - Verona
17:00 Torino - Bologna
19:45 Napoli - Roma

Bundesliga
14:30 Augsburg - Heidenheim
16:30 RB Leipzig - Wolfsburg

La Liga
13:00 Real Oviedo - Athletic Bilbao
15:15 Rayo Vallecano - Atletico Madrid
17:30 Levante - Valencia
20:00 Mallorca - Real Betis

Ligue 1
14:00 Le Havre - Toulouse
16:15 Metz - Auxerre
16:15 Lorient - Angers
19:45 Lyon - Nice
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 22 2 5 65 23 +42 68
2 Milan 28 17 9 2 44 20 +24 60
3 Napoli 29 18 5 6 45 30 +15 59
4 Juventus 29 15 8 6 51 28 +23 53
5 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
6 Roma 28 16 3 9 38 21 +17 51
7 Atalanta 29 12 11 6 40 27 +13 47
8 Bologna 28 11 6 11 37 34 +3 39
9 Sassuolo 28 11 5 12 35 38 -3 38
10 Lazio 28 9 10 9 28 28 0 37
11 Udinese 29 10 6 13 33 42 -9 36
12 Parma 28 8 10 10 20 32 -12 34
13 Genoa 28 7 9 12 34 40 -6 30
14 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
15 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
16 Lecce 29 7 6 16 21 39 -18 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Verona 28 3 9 16 22 49 -27 18
20 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner