Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
   sun 15. febrúar 2026 13:14
Brynjar Ingi Erluson
Man City jafnaði 145 ára gamalt met
Marc Guehi gulltryggði sigur Man CIty á Salford
Marc Guehi gulltryggði sigur Man CIty á Salford
Mynd: EPA
Manchester City jafnaði ótrúlegt met Clapham Rovers frá 1881 er liðið vann Salford 2-0 í 4. umferð enska bikarsins í gær.

Sjálfsmark Alfie Dorrington og fyrsta mark Marc Guehi fyrir Man City var það sem réði úrslitum á Etihad.

Þetta var sautjándi sigurleikur Man City á heimavelli í röð í bikarnum og tókst City-mönnum þar með að jafna met Clapham Rovers sem vann sautján heimaleiki í röð frá desember 1873 til febrúar 1881.

Clapham Rovers var sigursælt lið undir lok nítjándu aldar og vann enska bikarinn árið 1880. Árið áður komst liðið í úrslit, en félagið var lagt niður árið 1914 í kringum fyrri heimsstyrjöldina.

Man CIty á möguleika á því að eigna sér metið en það veltur allt á því hvort það muni fá heimaleik í næstu tveimur umferðum.


Athugasemdir
banner
banner