City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
   mán 16. mars 2026 10:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu fyrsta deildarmark Loga - Aftur í úrvalsliðinu
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Logi Tómasson var hetja Samsunspor í gær þegar liðið vann 2-1 sigur á Kayserispor í tyrknesku úrvalsdeildinni. Markið var fyrsta deildarmark Loga fyrir Samsunspor og annað markið hans á tímabilinu. Hann var keyptur til félagsins síðasta sumar frá Strömsgodset.

Á annarri mínútu uppbótartíma kom fyrirgjöf frá hægri og út á Loga sem stóð á vítateigslínunni úti vinsta megin. Hann tók boltann á kassann áður en hann skoraði með góðu skoti í fjærhornið og tryggði Samsunspor sigurinn. Markið má sjá í spilaranum neðst.

Samsunspor er í 7. sæti með 35 stig, fjórtán stigum frá Evrópusæti.

Vinstri bakvörðurinn fékk 7,9 í einkunn hjá Fotmob og er í úrvalsliði vikunnar. Hann var í liði vikunnar hjá beINSPORT í siðustu viku þegar hann lagði upp mark gegn Fenerbahce. Þetta var í fjórða sinn sem hann er í úrvalsliði Fotmob á tímabilinu.

Logi verður að öllum líkindum í landsliðshópnum sem Arnar Gunnlaugsson mun opinbera á miðvikudag fyrir vináttuleiki gegn Kanada og Haítí.


Athugasemdir
banner
banner