Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 10:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
U19 hópurinn í undankeppni EM - Blikar eiga flesta fulltrúa
Ragnheiður kemur inn
Kvenaboltinn
Líf er ein af fimm Blikum í hópnum.
Líf er ein af fimm Blikum í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Raghneiður Þórunn er að spila vel með PEC Zwolle en þar er hún á láni frá Val.
Raghneiður Þórunn er að spila vel með PEC Zwolle en þar er hún á láni frá Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Jón Sigurðsson - Donni, landsliðsþjálfari U19 kvenna, hefur valið hóp sem tekur þátt í seinni umferð undankeppni EM 2026.

Ísland er þar í riðli með Finnlandi, Danmörku og Serbíu en leikið er í Serbíu dagana 9.-15. apríl. Frekari upplýsingar um keppnina má finna á vef UEFA.

20 leikmenn eru í hópnum; Breiðablik á flesta fulltrúa eða fimm talsins, FH á fjóra og Valur á þrjá. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir kemur inn í hópinn frá síðasta úrtakshóp, hún spilar í Hollandi og er ein af tveimur sem spila erlendis. Rebekka Sif Brynjarsdóttir er hin, hún spilar í Danmörku. þrjár koma úr Lengjudeildinni og fimmtán úr Bestu deildinni.

Hópurinn
Edith Kristín Kristjánsdóttir - Breiðablik
Herdís Halla Guðbjartsdóttir - Breiðablik
Líf Joostdóttir van Bemmel - Breiðablik
Sunna Rún Sigurðardóttir - Breiðablik
Helga Rut Einarsdóttir - Breiðablik
Jónína Linnet - FH
Hildur Katrín Snorradóttir - FH
Berglind Freyja Hlynsdóttir - FH
Hrönn Haraldsdóttir - FH
Viktoría Sólveig K. Óðinsdóttir - Haukar
Rebekka Sif Brynjarsdóttir - FC Nordsjælland
Hrefna Jónsdóttir - Stjarnan
Védís Ösp Einarsdóttir - Selfoss
Arnfríður Auður Arnarsdóttir - Valur
Sóley Edda Ingadóttir - Valur
Hrafnhildur Salka Pálmadóttir - Valur
Katla Guðmundsdóttir - KR
Elísa Bríet Björnsdóttir - Þór/KA
Freyja Stefánsdóttir - Víkingur R.
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir - PEC Zwolle
Athugasemdir
banner
banner