Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Heimild: ESPN 
Cecilía á spennandi lista fyrir EM
Icelandair
EM KVK 2025
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Cecilía Rán Rúnarsdóttir átti stórkostlegt tímabil með Inter á láni frá Bayern Munchen á síðustu leiktíð.

Cecilía hjálpaði Inter að ná 2. sæti í ítölsku deildinni og þar með sæti í Meistaradeildinni. Hún var valinn besti markvörður deildarinnar en hún hélt tíu sinnum hreinu í 22 leikjum.

ESPN birti fimm manna lista yfir mest spennandi leikmenn 21 árs og yngri sem munu taka þátt á EM sem hefst þann 2. júlí í Sviss. Ísland er meðal þátttakenda og er hin 21 árs gamla Cecilía á listanum hjá ESPN.

„Hún er hávaxin en sýnir frábæra viðbrögð til að verja boltann af stuttu færi og er líka fljót að fara niður þegar þörf krefur. En það eru ennþá atriði sem þarf að bæta. Hún er ekki oft fyrirbyggjandi í að stöðva fyrirgjafir andstæðinganna með því að koma út og sækja boltann, og hæfni hennar til að slá í burtu er ekki heldur mjög traustvekjandi. Hún er aðeins 21 árs og það er útlit fyrir að hún verði meginstoð í íslenska liðinu næstu árin," segir í umfjöllun ESPN.

Hinar á listanum eru Sydney Schertenleib (18 ára sóknarmaður Sviss), Esmee Brugts (21 árs leikmaður Hollands), Ellen Wongerheim (20 ára framherji Svíþjóðar) og Emilia Scymczak (19 ára miðvörður Póllands).
Athugasemdir
banner
banner