Liverpool býður í Camavinga - Liverpool og Man City berjst um Semenyo - Fulham vill bandarískan sóknarmann
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs KR
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
banner
   sun 27. maí 2018 22:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stórtbrotið viðtal við Óla Kalla - „Erum í mikilli brekku"
Ólafur Karl Finsen í Valsbúningnum.
Ólafur Karl Finsen í Valsbúningnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Karl Finsen var hetja Valsmanna í kvöld er liðið lagði Breiðablik að velli. Sigurinn var mikilvægur fyrir Íslandsmeistaranna sem hafa ekki verið að ná í sérstök úrslit í byrjun móts.

Óhætt er að segja að viðtal sem Ólafur Karl fór í eftir leik sé athyglisvert.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  1 Breiðablik

„Við erum í mikilli brekku," sagði Ólafur Karl eftir leikinn og stóð fast á sínu.

„Brekkan var mjög brött, brattari núna. Það er gott að vera í brekku og okkur líður vel í brekku."

Þá barst talið að brekkunni á Þjóðhátíð.

„Ég fór síðast og var edrú, ég er enn að jafna mig. Þetta voru erfiðir 24 tímar."

Fyrstu mínútur Ólafs með Val í Pepsi-deildinni komu í kvöld.

„Ég er pollrólegur. Ég er að reyna að koma mér í leikform, ég er ekki í jafngóðu leikformi og aðrir í liðinu. Ég er að vinna í mínum málum, það gengur misvel. Mér er alveg sama um mig, ég er ánægðastur að hafa unnið leikinn," sagði Ólafur að lokum.
Athugasemdir
banner
banner