Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 29. ágúst 2014 13:00
Magnús Már Einarsson
Kovacic leitaði að Atla Jó til að skipta um treyju
Mynd: Twitter
Króatíski landsliðsmaðurinn Mateo Kovacic fór illa með Stjörnumenn í 6-0 sigri Inter í Evrópudeildinni í gærkvöldi.

Kovacic skoraði þrennu í leiknum en eftir leik vildi hann ólmur skipta á treyju við Atla Jóhannsson miðjumann Stjörnunnar.

Kovacic og Atli áttust við í báðum leikjum liðanna og Króatinn var hrifinn af Atla.

,,Eftir að heimsklassa leikmaðurinn Kovacic hafði drepið okkur þá leitaði hann í búningsklefanum og göngunum á San Siro að @atliyo til að skiptast á treyju," sagði Henrik Bödker aðstoðarþjálfari Stjörnunnar á Twitter.

Þrátt fyrir stórt tap gátu Stjörnumenn notið þess að spila á jafn stórum leikvangi og San Siro.

Jóhann Laxdal gat ekki spilað vegna meiðsla en hann nældi sér í bolamynd með Nemanja Vidic eins og sjá má hér til hliðar.

,,Ekki gat ég spilað en ég gerði engin mistök þegar það kemur að selfie," sagði Jóhann á Twitter.
Athugasemdir
banner
banner