Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 20:04
Brynjar Ingi Erluson
Fá fyrrum leikmann Barcelona til að fylla í skarð Benonýs
Mynd: Stockport County
Stockport County, lið Benonýs Breka Andréssonar, hefur brugðist við meiðslum framherjans og fengið Louie Barry aftur til félagsins á láni frá Aston Villa.

Benoný Breki meiddist á dögunum og er gert ráð fyrir að hann verði ekki með næstu mánuði.

Stockport vildi styrkja sig fyrir seinni hluta tímabilsins enda liðið í baráttu um að komast upp í B-deildina.

Barry er 22 ára gamall framherji sem ólst upp hjá WBA, en það vakti athygli árið 2019 er Barcelona fékk hann til félagsins. Hann staldraði stutt við þar og sneri aftur heim til Englands ári síðar.

Hann samdi við Aston Villa en ekki tekist að brjóta sér leið inn í liðið.

Þetta er í þriðja sinn sem Barry gengur í raðir Stockport á láni frá Villa, en hann var þar tvö tímabil í röð þar sem hann skoraði 25 mörk í öllum keppnum.

Stockport er í 4. sæti með 52 stig, átta stigum frá toppnum eftir 29 leiki spilaða.


Athugasemdir
banner
banner
banner