Skoska félagið Celtic hefur hafnað þriðja tilboði Nottingham Forest í Arne Engels.
Engels er 22 ára gamall miðjumaður sem kom til Celtic frá Augsburg árið 2024.
Forest hefur reynt að sannfæra Celtic um að selja hann í allan dag en Celtic verið mjög skýrt með að halda honum.
Fyrr í dag var öðru tilboði Forest hafnað í Engels og segir Sky Sports nú að þriðja tilboðinu hafi verið hafnað en talið er að það hafi numið um 25 milljónum punda.
Martin O´Neill, stjóri Celtic, sagði í gær að hann væri að vonast til þess að Celtic myndi hafna öllum tilboðum í Engels og er útlit fyrir að hann fái ósk sína uppfyllta.
Athugasemdir



