Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 21:05
Brynjar Ingi Erluson
Íslendingar í tapliðum - Íris skoraði
Kvenaboltinn
Mynd: Instargam
Íslendingalið Fiorentina og Köln töpuðu bæði í Evrópuboltanum í kvöld.

Fiorentina tapaði fyrir Napoli, 2-1, í Seríu A, en þar gerði hin norsk-íslenska Íris Ómarsdóttir eina mark Fiorentina.

Katla Tryggvadóttir og Hlín Eiríksdóttir voru báðar á bekknum hjá Fiorentina en komu ekki við sögu. Hlín kom til Fiorentina frá Leicester á dögunum og var þetta í annað sinn sem hún er í hópnum.

Fiorentina er í 7. sæti með 18 stig.

Sandra María Jessen byrjaði í fremstu víglínu hjá Köln sem tapaði fyrir Wolfsburg, 2-1.

Sandra hefur skorað níu deildarmörk fyrir Köln á þessu tímabili en liðið er í 8. sæti með 24 stig, fjórum stigum frá Evrópusæti.
Athugasemdir
banner
banner