Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
   mán 02. febrúar 2026 22:22
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Roma tapaði gegn Udinese
Jurgen Ekkelenkamp skoraði úr aukaspyrnu en þurfti örlitla hjálp við að koma boltanum í netið
Jurgen Ekkelenkamp skoraði úr aukaspyrnu en þurfti örlitla hjálp við að koma boltanum í netið
Mynd: EPA
Udinese 1 - 0 Roma
1-0 Jurgen Ekkelenkamp ('49 )

Roma tapaði öðrum leik sínum á nýju ári er það laut í lægra haldi fyrir Udinese, 1-0, í Seríu A á Ítalíu í kvöld.

Udinese hafði aðeins unnið einn af síðustu sex heimaleikjum sínum, en það var Jurgen Ekkelenkamp sem náði í fyrsta heimasigurinn á þessu ári.

Markið skoraði hann á 49. mínútu er aukaspyrna hans fór af varnarveggnum og alveg út við stöng hægra megin. Frábært mark þó svo hann hafi þurft örlitla hjálp við að koma boltanum í netið.

Roma kom boltanum í netið undir lok leiks en markið var tekið af Bryan Cristante vegna rangstöðu í aðdragandanum.

Udinese hélt út og tryggði sér mikilvægan sigur. Udinese er í 9. sæti með 32 stig, ellefu stigum frá Roma sem er í 5. sæti með 43 stig.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 30 22 3 5 66 24 +42 69
2 Milan 30 18 9 3 47 23 +24 63
3 Napoli 30 19 5 6 46 30 +16 62
4 Como 30 16 9 5 53 22 +31 57
5 Juventus 30 15 9 6 52 29 +23 54
6 Roma 30 17 3 10 40 23 +17 54
7 Atalanta 30 13 11 6 41 27 +14 50
8 Lazio 30 11 10 9 31 28 +3 43
9 Bologna 30 12 6 12 38 36 +2 42
10 Sassuolo 30 11 6 13 36 40 -4 39
11 Udinese 30 11 6 13 35 42 -7 39
12 Parma 30 8 10 12 21 38 -17 34
13 Genoa 30 8 9 13 36 42 -6 33
14 Torino 30 9 6 15 34 53 -19 33
15 Cagliari 30 7 9 14 31 42 -11 30
16 Fiorentina 30 6 11 13 35 44 -9 29
17 Cremonese 30 6 9 15 25 44 -19 27
18 Lecce 30 7 6 17 21 40 -19 27
19 Verona 30 3 9 18 22 52 -30 18
20 Pisa 30 2 12 16 23 54 -31 18
Slapp
banner