Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
   þri 03. febrúar 2026 13:00
Brynjar Ingi Erluson
Efnilegur Portúgali hafnaði risatilboði frá Sádi-Arabíu
Peningar eru ekki allt í augum Gustavo Sá
Peningar eru ekki allt í augum Gustavo Sá
Mynd: EPA
Portúgalski sóknartengiliðurinn Gustavo Sá hafnaði óvænt sádi-arabíska stórveldinu Al Ittihad en hann hefði þénað ríkulega með því að fara þangað.

Sá er 21 árs gamall og alger máttarstólpi í liði Famalicao sem leikur í portúgölsku úrvalsdeildinni.

Al Ittihad hafði náð samkomulag við Famalicao um kaupverð en það var Sergio Conceicao, þjálfari Al Ittihad, sem óskaði eftir því að fá samlanda sinn til félagsins.

Fabrizio Romano gekk svo langt að setja „Here we go!" á félagaskiptin, en Sá drap þá fullyrðingu með því að hafna því að ganga í raðir félagsins.

Samkvæmt O´Jogo í Portúgal bauð Al Ittihad honum þriggja og hálfs árs samning þar sem hann hefði þénað 17,5 milljónir evra yfir samningstímann.

Sá er með það í forgangi að fara í stærra félag í Evrópu og býst hann sjálfur við því að fá tilboð í sumarglugganum.

Portúgalinn á 40 leiki og 11 mörk fyrir yngri landsliðin, en ekki enn spilað A-landsleik.

Athugasemdir
banner
banner