Á sunnudagskvöld verður úrslitaleikur ameríska fótboltans en þá keppa Seattle Seahawks og New England Patriots um Ofurskálina, Super Bowl.
Leikið verður á hinum glæsilega Levi's leikvangi, heimavelli San Francisco 49ers.
Leikið verður á hinum glæsilega Levi's leikvangi, heimavelli San Francisco 49ers.
Íslenska landsliðið í hinum eina sanna fótbolta hefur spilað á þessum leikvangi en það var vináttulandsleikur gegn Mexíkó í mars 2018, í undirbúningi fyrir HM í Rússlandi.
Um 70 þúsund áhorfendur voru á þeim leik, fullur völlur, og stemningin mikil. Fyrir leik bjuggu stuðningsmenn Mexíkó til mikið fjör á ógnarstóru bílaplaninu við völlinn og héldu svokallað Tailgate partí.
Í leiknum sjálfum fengu liðin svipað mörg færi en Mexíkóar voru skilvirkari og unnu 3-0 sigur. Hér má lesa umfjöllun um leikinn.
Hér má sjá nokkrar myndir frá umræddum leik.
Athugasemdir



