Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
   þri 03. febrúar 2026 11:15
Kári Snorrason
Landslið Bestu deildarinnar - Tómas Þór
Tómas Þór velur í landslið Bestu deildarinnar.
Tómas Þór velur í landslið Bestu deildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Eitt auðveldasta valið af þeim öllum. Anton er þriðji markvörður landsliðsins þannig að þetta er frekar gefið.“
„Eitt auðveldasta valið af þeim öllum. Anton er þriðji markvörður landsliðsins þannig að þetta er frekar gefið.“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Gylfi fær kallið því hann er Gylfi.“
„Gylfi fær kallið því hann er Gylfi.“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér finnst hann geggjaður og hef mikla trú á honum.“
„Mér finnst hann geggjaður og hef mikla trú á honum.“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í útvarpsþætti Fótbolta.net síðastliðinn laugardag fékk Tómas Þór Þórðarsson það hlutverk að velja landslið Bestu deildarinnar.

Tilefnið er æfingaleikur Íslands gegn Mexíkó, sem fram fer í Mexíkó 25. febrúar, þar sem landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson fær álíka verkefni upp í hendurnar.

Leikurinn fer fram utan FIFA glugga og verður íslenski landsliðshópurinn því að stærstum hluta skipaður leikmönnum úr Bestu deildinni.

Tómas opinberaði val sitt í útvarpsþættinum á laugardaginn, og setti þann fyrirvara á að liðið endurspeglaði leikmenn sem hann telur eiga raunhæfa möguleika á að spila landsleiki til framtíðar.



Í markinu er Anton Ari Einarsson, eitt auðveldasta valið af þeim öllum. Anton Ari er þriðji markvörður landsliðsins þannig að þetta er frekar gefið.

Hægri bakvörður er Karl Friðleifur Gunnarsson, leikmaður sem ætti klárlega að spila í efstu deild í Noregi. Stór og sterkur og hefur klárlega burðina til að spila í atvinnumennsku.

Miðvarðarstaðan var klárlega erfiðust. Þetta útskýrir kannski hafsentakrísu landsliðsins. En ég vel Ásgeir Helga Orrason og
við hliðina á honum set ég Ívar Örn Árnason, Hans Viktor liðsfélagi hans í KA var nálægt þessu en Ívar fær kallið. Í vinstri bakverði er að sjálfsögðu Helgi Guðjónsson.

Það er Víkingsmiðja, Gylfi Þór Sigurðsson fær kallið því hann er Gylfi og hefur spilað frábærlega. Valdimar Þór Ingimundarson fær að sjálfsögðu pláss í liðinu og Daníel Hafsteinsson er einnig.

Á hægri kantinn vel ég Óskar Borgþórsson því hann er á leiðinni aftur út. Hann er með hraða og með eiginleika sem gæti nýst landsliðinu. Ágúst Orri Þorsteinsson vel ég á hinn kantinn. Mér finnst hann geggjaður og hef mikla trú á honum. Fremstur er svo Eiður Gauti Sæbjörnsson

Fyrri lið:
Baldur Sigurðsson
Sigurbjörn Hreiðarsson
Hrafnkell Freyr Ágústsson
Útvarpsþátturinn - Ólga í FH og Lengjudeildin aldrei verið stærri
Athugasemdir
banner
banner