Liverpool gæti barist við Man Utd um Wharton - Mateta og Tonali á blaði Man Utd - Milan, Chelsea og Newcastle hafa áhuga á Vlahovic
   mið 04. febrúar 2026 12:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fordæma rasísk ummæli undir kynningarmyndbandinu
Mynd: Lens
Allan Saint-Maximin hefur ekki átt sjö dagana sæla en hann yfirgaf mexíkóska félagið Club America á dögunum eftir að dætur hans urðu fyrir kynþáttafordómum.

Hann samdi við franska liðið Lens í kjölfarið en félagið hefur sent frá sér yfirlýsingu og styður við bakið á leikmanninum eftir að rasísk ummæli voru skrifuð af aðilum í athugasemdum við myndband sem félagið birti við undirskriftina hans við félagið.

Lens sendi frá sér yfirlýsingu þar sem félagið fordæmdi ummælin á samfélagsmiðlum sínum og hafa lokað fyrir möguleikann á að skrifa frekari athugasemdir við tilkynningarmyndbandið.

Saint-Maximin er 28 ára gamall franskur sóknarmaður en hann ætlar sér að hjálpa Lens í harðri baráttu í frönsku deildinni. Liðið er í 2. sæti, aðeins tveimur stigum á eftir PSG.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner