Hinn átján ára gamli James Wilson gekk á gluggadeginum í raðir Tottenham frá Hearts á lánssamningi út tímabilið en Tottenham getur svo keypt hann eftir tímabilið.
Arsenal var í viðræðum um að fá Wilson en leikmaðurinn ungi fór til Tottenham.
Þessi 18 ára framherji hefur þegar leikið inn fyrsta A-landsleik fyrir Skotland og er með átta mörk í 21 byrjunarliðsleik fyrir Edinborgarliðið. Hann hefur hinsvegar ekki fengið mikinn spiltíma að undanförnu.

Derek McInnes, stjóri Hearts, telur að Wilson hafi gert mistök með því að fara til Tottenham.
„James vildi fara, þú vilt ekki neyða leikmann til að vera áfram þegar hann er óánægður. Ég gat ekki lofað honum spiltíma, þannig er þetta bara. Ég sagði honum að ég vildi sjá hann vera áfram og berjast fyrir stöðu í liðinu, vera hluti af þessu," segir McInnes.
„Við hefðum getað lánað hann innan Skotlands til að fjölga spilmínútum hans. Ég held að það sé rangt skref fyrir hann. Hann fer í akademíuna fyrst hjá Tottenham en ég tel hann of góðan fyrir það. En þetta er eitthvað sem James vildi."
„Ég vona að þetta lukkist vel fyrir hann því hann er frábær strákur. Sjáum hvernig þetta þróast. Ég þarf að einbeita mér að leikmönnum sem eru hérna og vilja vera hérna."
Athugasemdir