Tilboðum í Maguire hafnað - Sesko velur Old Trafford - Villa búið að ná samkomulagi um Guessand
   mið 06. ágúst 2025 20:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deildin: Jeppe Pedersen skoraði í jafntefli í Mosó
Jeppe Pedersen
Jeppe Pedersen
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding 1 - 1 Vestri
0-1 Jeppe Pedersen ('14 )
1-1 Benjamin Stokke ('77 , víti)
Lestu um leikinn

Afturelding fékk Vestra í heimsókn í Bestu deildinni í kvöld. Fyrir leikinn var Vestri í 6. sæti með 22 stig en Afturelding í 9. sæti með 19 stig.

Vestri náði forystunni eftir stundafjórðung þegar Diego Montiel átti frábæra sendingu inn fyrir vörn Aftureldingar. Jeppe Pedersen slapp í gegn og reyndi að vippa yfir Jökul Andrésson.

Jökull náði ekki að grípa boltann og hann fór aftur til Jeppe sem skoraði á opið markið. Vel við hæfi þar sem bróðir hans, Patrick Pedersen, bætti markametið í efstu deild í gær.

Vestri var með verðskuldaða forystu í hálfleik en liðið beitti hröðum og góðum skyndisóknum.

Vestri kom boltanum aftur í netið eftir klukkutíma leik þegar Vladimir Tufegdzic kom boltanum í netið en Fatai Gbadamosi var dæmdur rangstæður.

Þegar stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma fékk Afturelding vítaspyrnu þegar Montiel braut á Hrannari Snæ Magnússyni. Benjamin Stokke steig á punktinn og skoraði.

Arnór Gauti Ragnarsson var hársbreidd frá því að koma Aftureldingu yfir seint í leiknum en EIður Aron Sigurbjörnsson bjargaði á línu.

Jafntefli niðurstaðan og Afturelding fer upp fyrir FH í 8. sæti með 20 stig en Vestri er áfram í 6. sæti með 23 stig.
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Valur 17 10 4 3 44 - 23 +21 34
2.    Víkingur R. 17 9 5 3 31 - 20 +11 32
3.    Breiðablik 17 9 5 3 29 - 22 +7 32
4.    Fram 17 7 4 6 26 - 22 +4 25
5.    Stjarnan 17 7 4 6 30 - 28 +2 25
6.    Vestri 17 7 2 8 16 - 15 +1 23
7.    ÍBV 17 6 3 8 16 - 24 -8 21
8.    Afturelding 17 5 5 7 20 - 25 -5 20
9.    FH 17 5 4 8 28 - 25 +3 19
10.    KA 17 5 4 8 17 - 32 -15 19
11.    KR 17 4 5 8 37 - 40 -3 17
12.    ÍA 17 5 1 11 18 - 36 -18 16
Athugasemdir
banner