Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
   sun 08. febrúar 2026 14:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Championship: Áttunda tap Sheffield Wednesday í röð
Zan Vipotnik (til vinstri)
Zan Vipotnik (til vinstri)
Mynd: EPA
Swansea 4 - 0 Sheffield Wed
1-0 Goncalo Franco ('19 )
2-0 Zan Vipotnik ('70 )
3-0 Zan Vipotnik ('78 )
4-0 Malick Yalcouye ('88 )

Sheffield Wednesday hefur verið í stórkostlegum vandræðum á tímabilinu en alls 18 stig hafa verið dregin af liðinu á tímabilinu vegna brota á fjárhagsreglum.

Liðið er með sjö stig í mínus á botninum eftir tap gegn Swansea í dag en Goncalo Franco sá til þess að Swansea var með forystu í hálfleik. Zan Vipotnik bætti tveimur mörkum við áður en Malick Yalcouye innsiglaði sigurinn.

Sheffield er án sigurs í síðustu 25 leikjum og hefur tapað átta leikjum í röð sem er jöfnun á félagsmeti. Þá hefur liðið ekki skorað í níu leikjum í röð.

Eins og fyrr segir er liðið á botninum með sjö stig í mínus en Swansea er í 15. sæti með 42 stig.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 40 24 9 7 81 40 +41 81
2 Millwall 40 21 9 10 55 45 +10 72
3 Middlesbrough 40 20 11 9 60 39 +21 71
4 Ipswich Town 38 19 12 7 67 39 +28 69
5 Hull City 40 20 7 13 63 58 +5 67
6 Wrexham 40 17 13 10 62 53 +9 64
7 Southampton 39 17 12 10 63 48 +15 63
8 Derby County 40 17 10 13 56 48 +8 61
9 Watford 40 14 14 12 51 48 +3 56
10 QPR 40 16 8 16 57 62 -5 56
11 Norwich 40 16 7 17 53 47 +6 55
12 Stoke City 40 15 9 16 48 43 +5 54
13 Bristol City 40 15 9 16 51 51 0 54
14 Birmingham 40 14 11 15 48 50 -2 53
15 Preston NE 40 13 14 13 47 51 -4 53
16 Swansea 40 15 8 17 47 52 -5 53
17 Sheffield Utd 40 15 6 19 57 57 0 51
18 Charlton Athletic 40 12 12 16 37 48 -11 48
19 Blackburn 40 12 10 18 37 49 -12 46
20 West Brom 40 11 11 18 42 56 -14 44
21 Portsmouth 39 10 11 18 38 55 -17 41
22 Leicester 40 11 13 16 53 62 -9 40
23 Oxford United 40 9 13 18 37 52 -15 40
24 Sheff Wed 40 1 9 30 24 81 -57 -6
Slapp
banner
banner