Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   sun 08. febrúar 2026 16:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Ismaila Sarr hetja Crystal Palace
Ismaila Sarr
Ismaila Sarr
Mynd: EPA
Brighton 0 - 1 Crystal Palace
0-1 Ismaila Sarr ('61 )

Crystal Palace vann sterkan sigur á Brighton í úrvalsdeildinni í dag. Fyrri hálfleikurinn var tíðindalítill en Brighton var líklegri aðilinn. Maxim De Cuyper fékk gott tækifæri til að koma Brighton yfir eftir hálftíma leik.

Kaoru Mitoma átti fyrirgjöf og boltinn barst til De Cuyper sem átti skot en Chris Richards komst fyrir að kom í veg fyrir að boltinn kæmist á markið.

Crystal Palace sýndi betri takta í seinni hálfleik. Ismaila Sarr kom Palace yfir eftir að Evann Guessand sendi hann í gegn en Guessand var nýkominn inn á sem varamaður. Þetta reyndist vera sigurmarkið.

Jörgen Strand Larsen fékk tvö góð tækifæri til að skora sitt fyrsta mark í frumrauninni fyrir Crystal Palace. Fyrst átti hann skot sem fór beint á Bart Verbruggen og stuttu síðar átti hann skalla en hitti ekki á markið.

Crystal Palace komst upp fyrir Brighton í 13. sæti deildarinnar. Palace er með 32 stig en Brighton er með 31 stig í 14. sæti.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner