Rodri, Leon Goretzka, Dusan Vlahovic, Sandro Tonali og Marcus Rashford eru meðal þeirra sem koma við sögu
   sun 08. febrúar 2026 21:50
Brynjar Ingi Erluson
Frakkland: PSG slátraði Marseille - Dembele allt í öllu
Það voru Ballon d'Or taktar í Dembele í leiknum í kvöld
Það voru Ballon d'Or taktar í Dembele í leiknum í kvöld
Mynd: EPA
Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain fóru illa með erkifjendur sína í Marseille í frönsku deildinni í kvöld, en leiknum lauk með 5-0 sigri PSG sem endurheimti toppsætið.

Marseille hefur verið að spila frábæran fótbolta á tímabilinu, en það skiptir stuðningsmenn liðsins litlu máli sem þrá það mest að vinna PSG tímabil eftir tímabil.

Þeir fara grátandi á koddann í kvöld og verða líklega einhverjar óeirðir, enda tapaði liðið heldur stórt fyrir erkifjendum sínum.

Ousmane Dembele gaf tóninn með tveimur mörkum með 25 mínútna millibili í fyrri hálfleik. Nuno Mendes komst í gegn vinstra megin, kom boltanum inn á teiginn á Dembele sem skoraði á 12. mínútu og á 37. mínútu kom annað mark Dembele eftir stórkostlegt einstaklingsframtak.

Hann fékk sendingu úti hægra megin eftir að varnarmaður Marseille hitti ekki boltann. Dembele sólaði síðan tvo leikmenn og þrumaði boltanum upp í þaknetið eins og sönnum Ballon d'Or sigurvegara sæmir.

Þriðja markið kom eftir mikla áræðni frá Joao Neves sem kom sér inn á teiginn, setti boltann í Facundo Medina, varnarmann Marseille, sem stýrði honum í eigið net.

Dembele lagði upp fjórða markið fyrir Khvicha Kvaratskhelia á 66. mínútu og þá skoraði Lee Kang-In fimmta og síðasta mark leiksins stuttu síðar.

Alger niðurlæging á Parc des Princes í París. PSG er á toppnum með 51 stig en Marseille í 4. sæti með 39 stig.

Úrslit og markaskorarar:

PSG 5 - 0 Marseille
1-0 Ousmane Dembele ('12 )
2-0 Ousmane Dembele ('37 )
3-0 Facundo Medine ('64, sjálfsmark )
4-0 Khvicha Kvaratskhelia ('66 )
5-0 Lee Kang-In ('74 )

Le Havre 2 - 1 Strasbourg
1-0 Stephan Zagadou ('26 )
1-1 Martial Godo ('36 )
2-1 Issa Soumare ('54 )
Rautt spjald: Ismael Doukoure ('29, Strasbourg )

Auxerre 0 - 0 Paris FC

Angers 1 - 0 Toulouse
1-0 Lilian Raolisoa ('89 )

Nice 0 - 0 Mónakó


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner