Grótta 1 - 4 KR
1-0 Díana Ásta Guðmundsdóttir ('45 )
1-1 Kara Guðmundsdóttir ('58 )
1-2 Kara Guðmundsdóttir ('68 )
1-3 Makayla Soll ('75 )
1-4 Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir ('90 )
1-0 Díana Ásta Guðmundsdóttir ('45 )
1-1 Kara Guðmundsdóttir ('58 )
1-2 Kara Guðmundsdóttir ('68 )
1-3 Makayla Soll ('75 )
1-4 Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir ('90 )
KR-ingar unnu 4-1 endurkomusigur á nágrönnum sínum í Gróttu í B-deild Lengjubikars kvenna á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi í dag.
Gróttu-konur fóru inn í hálfleikinn með 1-0 forystu, en mark liðsins kom undir lok hálfleiksins frá Díönu Ástu Guðmundsdóttur.
Í þeim síðari komu KR-ingar áræðnir til leiks. Kara Guðmundsdóttir skoraði tvö á tíu mínútum og á síðasta stundarfjórðungi leiksins kláruðu þær Makayla Soll og Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir dæmið með tveimur mörkum.
Sigur í fyrsta leik KR en þær mæta næst Haukum þann 21. febrúar á meðan Grótta spilar við ÍA á laugardag.
Athugasemdir


