Rodri, Leon Goretzka, Dusan Vlahovic, Sandro Tonali og Marcus Rashford eru meðal þeirra sem koma við sögu
   sun 08. febrúar 2026 16:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikarinn: ÍBV lagði Leikni
Hermann Þór Ragnarsson
Hermann Þór Ragnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV 3 - 1 Leiknir R.
0-1 Kári Steinn Hlífarsson ('1 )
1-1 Viggó Valgeirsson ('27 )
2-1 Hermann Þór Ragnarsson ('73 )
3-1 Mattias Edeland ('90 )

ÍBV fékk Leikni í heimsókn í riðli fjögur í Lengjubikarnum í dag. Þetta var fyrsti leikur Eyjamanna í keppninni en Leiknir tapaði gegn Þrótti í sínum fyrsta leik.

Það var draumabyrjun fyrir Leikni sem komst yfir strax í upphafi leiks en Viggó Valgeirsson jafnaði metin fyrir ÍBV eftir tæplega hálftíma leik.

Þegar rúmur stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma kom Hermann Þór Ragnarsson ÍBV yfir. Það var síðan Mattias Edeland sem innsiglaði sigur Eyjamanna með marki í blálokin.

Næsti leikur ÍBV er gegn FH í Skessunni fimmtudaginn 12. febrúar og Leiknir fær Fylki í heimsókn á laugardaginn 14. febrúar.
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 4
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Breiðablik 0 0 0 0 0 - 0 0 0
2.    FH 0 0 0 0 0 - 0 0 0
3.    Fylkir 0 0 0 0 0 - 0 0 0
4.    ÍBV 0 0 0 0 0 - 0 0 0
5.    Leiknir R. 0 0 0 0 0 - 0 0 0
6.    Þróttur R. 0 0 0 0 0 - 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner