Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   sun 08. febrúar 2026 21:01
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Antony hetjan gegn Atlético - Guruzeta heitur
Antony skoraði sigurmark Betis
Antony skoraði sigurmark Betis
Mynd: EPA
Gorka Guruzeta hefur komið að átta mörkum í síðustu níu leikjum í öllum keppnum
Gorka Guruzeta hefur komið að átta mörkum í síðustu níu leikjum í öllum keppnum
Mynd: EPA
Antony skoraði eina mark leiksins er Real Betis vann óvæntan 1-0 sigur á Atlético Madríd í La Liga í dag.

Brasilíumaðurinn fór í gegnum endurnýjun lífdaga er hann gekk í raðir Betis á láni frá Manchester United á síðasta ári. Hann gerði félagaskipti sín varanleg síðasta sumar og verið atkvæðamikill á þessu tímabili.

Sigurmarkið gerði hann á 28. mínútu sem var í miklum Antony-stíl, en hann fékk boltann hægra megin fyrir utan teig, tók eina gabbhreyfingu og skaut boltanum í hægra hornið.

Glæsilegt mark og Betis í 6. sæti með 38 stig en Atlético Madríd í 3. sæti með 45 stig.

Gorka Guruzeta er áfram heitur með Athletic en hann skoraði tvennu á fimm mínútum í 4-2 sigri á Levante.

Hann hefur komið að átta mörkum í síðustu níu leikjum með Athletic í öllum keppnum og var þá að skora tvennu í sjötta sinn gegn Levante í La Liga.

Athletic er í 10. sæti með 28 stig en Levante í næst neðsta sæti með 18 stig.

Atletico Madrid 0 - 1 Betis
0-1 Antony ('28 )

Athletic 4 - 2 Levante
1-0 Gorka Guruzeta ('29 )
2-0 Gorka Guruzeta ('34 )
2-1 Unai Elgezabal ('81 )
3-1 Nico Serrano ('86 )
4-1 Robert Navarro ('90 )
4-2 Jon Ander Olasagasti ('90 )
Rautt spjald: Alan Matturro, Levante ('17)

Alaves 0 - 2 Getafe
0-1 Luis Vazquez ('53 )
0-2 Mauro Arambarri ('72 , víti)

Sevilla 1 - 1 Girona
0-1 Thomas Lemar ('2 )
1-1 Kike Salas ('90 )
1-1 Christian Stuani ('90 , Misnotað víti)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 27 22 1 4 72 26 +46 67
2 Real Madrid 27 20 3 4 56 23 +33 63
3 Atletico Madrid 27 16 6 5 46 25 +21 54
4 Villarreal 27 17 3 7 50 32 +18 54
5 Betis 27 11 10 6 42 34 +8 43
6 Celta 27 10 10 7 37 30 +7 40
7 Espanyol 26 10 6 10 33 39 -6 36
8 Real Sociedad 27 9 8 10 40 41 -1 35
9 Getafe 27 10 5 12 23 29 -6 35
10 Athletic 27 10 5 12 30 37 -7 35
11 Osasuna 27 9 7 11 32 32 0 34
12 Valencia 27 8 8 11 30 41 -11 32
13 Vallecano 27 7 10 10 27 33 -6 31
14 Sevilla 27 8 7 12 35 42 -7 31
15 Girona 27 7 10 10 28 43 -15 31
16 Alaves 27 7 6 14 25 37 -12 27
17 Elche 27 5 11 11 35 41 -6 26
18 Mallorca 27 6 7 14 31 44 -13 25
19 Levante 27 5 7 15 29 45 -16 22
20 Oviedo 26 3 8 15 16 43 -27 17
Athugasemdir
banner
banner