Belgíski miðjumaðurinn Kevin de Bruyne er á bekknum hjá Manchester City gegn Real Madrid í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld en hann átti að byrja leikinn.
De Bruyne er einn af mikilvægustu mönnum Man City en hann getur verið alger úrslitavaldur í leikjum.
Það kom því mörgum á óvart að hann væri ekki að byrja gegn einu besta liði heims.
Pep Guardiola, stjóri Man City, sagði að De Bruyne hafi veikst rétt fyrir leikinn.
„Honum leið ekki vel. Við tókum fund og þar var hann klár en þegar við mættum á völlinn þá byrjaði hann að æla og sagði við mig að hann væri ekki klár,“ sagði Guardiola.
Athugasemdir