Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
banner
   fös 13. febrúar 2026 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Flick ósáttur: Dómarinn bauð þeim að vera grófir
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Hansi Flick átti varla til orð þegar hann svaraði spurningu um dómgæsluna í 4-0 sigri Atlético Madrid gegn Barcelona í undanúrslitum spænska bikarsins í gærkvöldi.

Hann var mjög ósáttur með línuna sem dómari leiksins tók í fyrri hálfleik og sakar dómarann um að hafa boðið Atlético að spila gróft á meðan Börsungar fengu spjöld fyrir svipuð brot.

„Hvað ætti ég að segja? Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja," sagði mjög tilfinningaríkur Flick eftir tapið.

„Fyrsta atvikið þegar (Alejandro) Balde var straujaður á alltaf að vera gult spjald. Þetta er allan daginn gult spjald. Eftir þetta atvik verður leikurinn öðruvísi. Hann bauð þeim að vera grófir án refsingar og svo fáum við mjög tæpt gult spjald.

„Þetta er algjört rugl, ástandið er til skammar. Svo þurftu þeir hversu langan tíma, sjö mínútur? Sjö mínútur. Í alvöru. Á sjö mínútum finna þeir eitthvað smáatriði til þess að úrskurða leikmanninn okkar rangstæðan. Ég er búinn að horfa á þetta endursýnt og það er augljóslega engin rangstaða þarna. Augljóslega engin rangstaða.

„Þeir kannski sjá eitthvað annað úr þessu heldur en við, en segið okkur frá því! Segið okkur það! Þeir útskýrðu ekkert fyrir okkur, það voru engin samskipti. Þetta er algjör hörmung."


Flick er þó jákvæður fyrir seinni leik liðanna sem fer fram 3. mars á Camp Nou.

„Þó að við séum fjórum mörkum undir þá er þetta ekki búið. Við getum ekki útilokað endurkomu. Seinni leikurinn er á okkar heimavelli og við þurfum á stuðningsmönnunum okkar að halda. Við viljum fylla leikvanginn."

Sjáðu rangstöðumarkið umdeilda

Flick var einnig ósáttur með aðra tæklingu á Balde seinna í leiknum þegar Giuliano Simeone fékk gult spjald í upphafi síðari hálfleiks, en liturinn á spjaldinu hefði að öllum líkindum átt að vera rauður.

   13.02.2026 12:55
Forseti Barcelona bálreiður: Óásættanlegt að bíða í 8 mínútur eftir ákvörðun

Athugasemdir
banner
banner
banner