Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 14. júní 2019 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Liverpool hættir við æfingaleik gegn Schalke
Mynd: Getty Images
Liverpool og Schalke 04 áttu að mætast í æfingaleik þann 6. ágúst næstkomandi. Hætt hefur verið þann æfingaleik eftir að leikjaplan ensku úrvalsdeildarinnar var birt.

Leikurinn við Schalke átti að vera síðasti æfingaleikur Liverpool, en nú er það ljóst að hann fer ekki fram.

Liverpool mætir nefnilega Norwich í sínum fyrsta deildarleik ensku úrvalsdeildarinnar þann 9. ágúst.

Þrír dagar voru ekki taldir nóg fyrir Liverpool til þess að jafna sig fyrir fyrsta deildarleikinn.

Í tilkynningu á Facebook-síðu Schalke segir að leikurinn muni í staðinn fara fram á næsta ári.

Fyrsti leikur Liverpool á undirbúningstímabilinu er 11. júlí gegn Tranmere. Liverpool á einnig æfingaleiki gegn Bradford, Lyon og Napoli í sumar.
Athugasemdir
banner